Eyjamaðurinn Erlingur Richardsson heldur áfram að gera góða hluti með GWD Minden í þýsku B-deildinni í handbolta. Liðið vann Ferndorf örugglega á heimavelli, 27–20.
Þetta var fimmti sigur Minden í röð síðan Erlingur tók við liðinu í lok september. Áður en hann kom hafði liðið aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjunum.
Minden er nú í 6. sæti deildarinnar með 13 stig.

