20.12.2020
Út var að koma hjá Bókaútgáfunni Hólum bráðsmellin bók, Fimmaurabrandarar 2, en hún er vitaskuld framhald af þeirri númer 1, sem naut og nýtur enn mikilla vinsælda.
Hér á eftir er gripið niður í nýju bókina:
*
Ef maður lækkar rostann í rostungi,
verður þá bara ungi eftir?
*
Í eigin jarðarför er maður oftast vant við látinn.
*
Dönsk pæling:
Hjartaskurðlæknir fór með bílinn sinn á verkstæði.
Bifvélavirkinn: „Við vinnum eiginlega sams konar störf læknir. Ég hreinsa
ventlana og karboratorinn, skipti um púströr, set svo allt á sinn stað og eftir það
gengur bíllinn eins og ekkert sé. Samt ert þú með miklu hærri tekjur en ég. Hvað
segirðu við því?“
Læknirinn: „Ég veit hvað þú meinar, en — hefurðu reynt að gera þetta allt á
meðan vélin er í gangi?“
*
Ég frétti af einum sem fór á eBay og var svo lélegur í ensku að hann ýtti alltaf á
„Buy Now!“ og hélt hann væri að kveðja.
*
Gengi krónunnar var rétt í þessu að bætast á lista Ríkislögreglustjóra yfir
hættulegustu gengi Íslands!
*
Móðir mín sagði að leiðin að hjarta mannsins væri í gegnum magann. Yndisleg
kona, en glataður skurðlæknir!
*
Ég fékk flís um daginn. Hún var svo langt niðri að það þurfti sálfræðing til að ná
henni upp aftur.
*
Hvað kallast lúsmý sem treðst framfyrir? Skjúsmý
*
Óska eftir tveggja ára bát … má vera fjögurra ára!


