Fimm úr áhöfn Bergeyjar smitaðir

Fimm úr áhöfn Bergeyjar VE hafa reynst smitaðir af Covid-19.

Heimasíðan Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra Bergs-Hugins í gær, og spurði hvenær þetta hefði gerst. „Það voru áhafnarskipti í Neskaupstað á fimmtudaginn. Einn sem var að koma í land fór að finna fyrir einkennum á föstudag og var þá kominn til Reykjavíkur.

Hann fór í hraðpróf og reyndist þá jákvæður. Það var endurtekið þrisvar sinnum og skilaði alltaf jákvæðri niðurstöðu. Síðan fór hann í PCR-próf og þá var niðurstaðan staðfest. Þegar þarna var komið sögu fór öll skipshöfnin í hraðpróf um borð og þá reyndist annar jákvæður. Landhelgisgæslunni var þegar tilkynnt um stöðuna og haldið til Vestmannaeyja. Sá þriðji bættist síðan við eftir hraðpróf á laugardagsmorgun.

Í Vestmannaeyjum var tekið PCR-próf af áhöfninni og þegar niðurstaðan úr því lá fyrir bættust tveir í hópinn þannig að alls voru þá smitaðir orðnir fimm talsins. Þegar í land kom fór öll áhöfnin í sóttkví og í gær var allt skipið sótthreinsað hátt og lágt.

Það er alveg óvíst hvenær Bergey heldur til veiða á ný,“ segir Arnar.

Valtýr Auðbergsson og Arnar Richardsson að störfum við að sótthreinsa Bergey VE.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is