Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna og Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 kvenna hafa valið hópa sem taka þátt í úrtaksæfingum í næstu viku.
Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. Í ljósi stöðunnar í samfélaginu vegna heimsfaraldursins covid-19 eiga leikmenn að mæta klæddir í sínu eigin æfingafatnaði beint í Skessuna.
ÍBV á 5 fulltrúa í þessum 3 liðum og óskum við þeim til hamingju.
U-16
Berta Sigursteinsd
U-17
Þóra Björg Stefansdottir
Helena Jonsdottir
U-19
Ragna Sara Magnusdottir
Clara Sigurðardottir
það ma einnig geta þess að þær Auður Scheving og Kristjana Sigurz sem spiluðu með IBV á siðustu timabili eru einnig valdar i U-19

