Fimm ungar handboltakonur úr ÍBV hafa verið boðaðar á æfingar með yngri landsliðum Íslands síðar í nóvember. Fjórar þeirra æfa með U19 ára landsliði kvenna og ein með U15 ára landsliðinu.
Fjórar með U19 ára liðinu
Agnes Lilja Styrmisdóttir, Birna Dögg Egilsdóttir, Klara Káradóttir og Lilja Kristín Svansdóttir eru í æfingahópi U19 ára landsliðs kvenna, sem kemur saman dagana 23.–29. nóvember. Þjálfarar liðsins eru Halldór Stefán Haraldsson og Jovan Kukobat.
Bríet Ósk með U15
Bríet Ósk Magnúsdóttir hefur verið boðuð á æfingar U15 ára landsliðs kvenna dagana 26.–29. nóvember. Þjálfarar U15 ára liðsins eru Heimir Örn Árnason og Sunna Jónsdóttir.
Glódís Dúna á leið til Færeyja
ÍBV minnir einnig á að Glódís Dúna Óðinsdóttir er í 16 manna lokahópi U17 ára landsliðsins, sem leikur í undankeppni Evrópumótsins í Færeyjum dagana 25.–30. nóvember. Tígull sagði frá vali hennar í gær.
Tígull óskar stelpunum öllum innilega til hamingju.

