Um Sjómannadagshelgina, 4.-6. júní s.l., fór B-hópur Sundfélags ÍBV á Akranesleikana í sundi í Jaðarsbakkalaug
Fimm stúlkur fóru á mótið og keppti hver um sig í 6 greinum. Keppt var í 25 metra útilaug og voru aðstæður ekki sem bestar þar sem Akranes tók á móti keppendum með roki og rigningu og hélst það veður alla helgina. Okkar konur létu það ekki á sig fá og margar bættu tímana sína og þrjár þeirra unnu til verðlauna. Bjartey Ósk Sæþórsdóttir vann gull í 400m skriðsundi, Vala Dröfn Kolbeinsdóttir vann silfur í 400m skriðsundi og Arna Gunnlaugsdóttir vann gull í 100m og 200m bringusundi og brons í 200m skriðsundi.
Þess má geta að 5 iðkendur munu fara á AMÍ, Aldursmeistaramót Íslands, á Akureyri í sumar en til þess að fá aðgang að því móti þarf að ná lágmarkstíma í hverri grein. Það tókst í vetur þrátt fyrir takmarkað mótshald vegna Covid.
Framtíðin er því björt hjá Sundfélaginu og þegar samkomutakmörkunum fer að létta almennilega verður hægt að fara með fleiri hópa á mót. Iðkendum fer smátt og smátt fjölgandi og ber þjálfarinn Svanhildur Eiríksdóttir hitann og þungann af frábæru starfi Sundfélagsins með stjórnina á kantinum.
Hægt er að fylgjast með starfi Sundfélagsins á facebook og á Instagram.



