Fimm frá ÍBV í landsliðshópum

23.06.2020

U-16 og U-18 ára landslið kvenna í handknattleik halda til Færeyja í byrjun ágúst og spila þar tvo vináttulandsleiki hvort lið við heimakonur. Þjálfarar liðanna hafa valið leikmannahópa liðanna og eru fimm leikmenn frá ÍBV í þeim.

Liðin æfa 28. – 30. júlí á höfuðborgarsvæðinu en halda til Færeyja föstudaginn 31. júlí. Leikirnir við Færeyinga fara fram í Þórshöfn 1. og 2. ágúst en liðin halda heim 3. ágúst.

Eins og áður segir eru fimm fulltrúar ÍBV í hópunum. tvær í U-18, þær Bríet Ómarsdóttir og Harpa Valey Gylfadóttir. Í U-16 eru frá ÍBV þær Amelía Einarsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Sara Dröfn Ríkharðsdóttir. 

U-18 ára landslið kvenna

Þjálfarar:
Magnús Stefánsson 
Díana Guðjónsdóttir

Hópinn má sjá hér:

Andrea Gunnlaugsdóttir, Valur
Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Valur
Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, Stjarnan
Bríet Ómarsdóttir, ÍBV
Daðey Ásta Hálfdánsdóttir, Fram
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur
Emilía Ósk Steinarsdóttir, FH
Hanna Karen Ólafsdóttir, Valur
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV
Helga María Viðarsdóttir, KA/Þór
Hólmfríður Arna Steinsdóttir, Selfoss
Katrín Helga Sigurbergsdóttir, Grótta
Katrín Tinna Jensdóttir, Stjarnan
Lísa Bergdís Arnarsdóttir, Stjarnan
Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór
Sara Katrín Gunnarsdóttir, HK

U-16 ára landslið kvenna

Þjálfarar:
Ágúst Jóhannsson
Árni Stefán Guðjónsson

Hópinn má sjá hér:

Amelía Einarsdóttir, ÍBV
Anna María Aðalsteinsdóttir, ÍR
Elísa Elíasdóttir, ÍBV
Embla Steindórsdóttir, HK
Emilía Katrín Matthíasdóttir, Haukar
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, HK
Hildur Lilja Jónsdóttir, KA/Þór
Inga Dís Jóhannsdóttir, HK
Ísabella Schöbel Björnsdóttir, ÍR
Joanna Marianova Siarova, Grótta
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta
Lilja Ágústsdóttir, Valur
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar
Sara Dröfn Ríkharðsdóttir, ÍBV
Thelma Melsteð Björgvinsdóttir, Haukar
Tinna Sigurrós Traustadóttir, Selfoss

Forsíðumynd og upplýsingar frá hsi.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is