02.10.2020
Á facebooksíðu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum var greint frá að í gær stöðvaði Lögreglan för aðila sem grunaður er um fíkniefnamisferli en hann var að koma með Herjólfi til Eyja.
Við leit í bifreið aðilans fann fíkniefnaleitarhundurinn Rökkvi talsvert magn af fíkniefnum sem búið var að fela vandlega.
Lögregla ætlar að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu í Vestmannaeyjum.
Málið er í rannsókn.