Sunnudagur 15. nóvember 2026

Fetar í fótspor föður síns

Bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson er genginn í raðir ÍBV eftir að hafa yfirgefið Leikni Reykjavík í vikunni. Arnór hafði verið í Leikni frá árinu 2020 en áður var hann í Fylki í stuttan tíma og Stjörnunni, þar sem hann er uppalinn.
Þessi 23 ára leikmaður lék með Leikni í efstu deild tímabilin 2021 og 2022 en einnig nokkra leiki með Valsmönnum seinna árið. Samtals á hann 31 leik í efstu deild fyrir þau tvö lið en þá hefur hann leikið 55 leiki í Lengjudeildinni, alla með Leikni.
Arnór fetar því í fótspor föður síns, en faðir Arnórs, Kristinn Ingi Lárusson lék á sínum tíma með ÍBV, árið 1998 þegar hann varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu, þar sem hann lék lykilhlutverk.
Arnór er annar leikmaðurinn sem kemur til liðs við ÍBV eftir að Þorlákur Árnason tók við liðinu en fyrr í vikunni gekk Omar Sowe til liðs við félagið.
Knattspyrnuráð hlakkar til samstarfsins við Arnór og býður hann velkominn til Vestmannaeyja segir að lokum í tilkynningu frá ÍBV Knattspyrnu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search