ÍBV gefur fermingarbörnum miða, einnig þeim sem fermdust þegar hátíðin fór ekki fram
,,ÍBV hefur ár hvert gefið fermingarbörnum í Vestmanneyjum miða á Þjóðhátíð í fermingargjöf, á því verður engin breyting. Þau fermingarbörn sem fermdust þegar hátín fór ekki fram fá líka miða í ár. Í fyrra fengu öll fermingarbörn senda miða og munu þeir miðar virka sem gjafabréf á hátíðina í ár,“sagði Hörður Orri Grettisson, formaður Þjóðhátíðarnefndar í samtalið við Tígul.
Mynd: Gunnar Ingi

