20.04.2020
Viðbótarúthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljón kr. viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020 með hliðsjón af vinnu stjórnar sjóðsins frá úthlutun ársins 2020 í mars sl.
Vestmannaeyjabær fékk styrk til að laga tvær gönguleiðir á Heimaey annars vegar uppbygging gönguleiðar með vesturströnd Heimaeyjar og er styrkurinn upp á 6.180.000 kr og einnig fékk vinsæla gönguleiðin í Dalfjalli úthlutaðar 13.000.000 kr til lagfæringar.
Með fjárveitingunni, sem er hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna COVID-19 faraldursins, verður unnt að hraða uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum um allt land sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins.
Alls hljóta 15 verkefni, til viðbótar við þau 33 verkefni sem tilkynnt var að fengju styrk úr sjóðnum í mars sl., brautargengi. Um er að ræða verkefni víðsvegar um landið sem sóttu um í sjóðinn við síðustu úthlutun en náðu ekki fram að ganga. Stærstur hluti úthlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi.
Ferðamálastofa mun á næstunni hafa samband við styrkþega og gera við þá samninga um framkvæmd verkefnanna.
Umsækjandi: Hjarðarhagi ehf – Torfhúsin í Hjarðarhaga: Bætt aðgengi fyrir ferðamenn 1.243.100
Umsækjandi: Skógræktarfélag Reykjavíkur – tengileið Mógilsá – Kollafjarðará 17.000.000
Umsækjandi: Akureyrarbær – stígagerð og brúun í fólkvangnum á Glerárdal frá bifreiðastæði að Lamba (skála ferðafélags Akureyrar) 21.485.000
Umsækjandi: Langanesbyggð – Hafnartangi á Bakkafirði – áningarstaður við ysta haf – 30.000.000
Umsækjandi: Norðurþing – Bifröst við Heimskautsgerði – 35.000.000
Umsækjandi: Sveitarfélagið Hornafjörður – göngu og hjólastígur milli Svínafells og Skaftafells 12.000.000
Umsækjandi: Vestmannaeyjabær markviss uppbygging gönguleiðar með vesturströnd Heimaeyjar 6.180.000
Umsækjandi: Vestmannaeyjabær, lagfæringar á gönguleið í Dalfjalli 13.000.000
Umsækjandi: Fannborg ehf – áningarstaður við Gýgjarfoss Suðurland 2.412.620
Umsækjandi: Katla Jarðvangur ses – aukið öryggi við útsýnisstopp hjá Eyjafjallajökli Suðurland 3.512.800
Umsækjandi: Skálholt – Þorláksleið, gönguleiðaverkefni Suðurland 19.000.000
Umsækjandi: Suðurnesjabær – aðkomusvæði við Skagagarðinn, nýr ferðamannastaður Suðurnes 11.680.000
Umsækjandi: Suðurnesjabær – göngustígur frá kirkju að höfn í Garði Suðurnes 3.040.000
Umsækjandi: Eyja-og Miklaholtshreppur – útisvæði við gestastofu snæfellsness Vesturland 7.607.000
Umsækjandi: Dalabyggð – minningarreitur um sagnaritarann Sturlu Þórðarson Vesturland 16.158.307
Forsíðumynd Halldór Ben