Ferðamálasamtök Vestmannaeyja skora á bæjarráð að friða Stórhöfða eða alfarið banna
lundaveiðar þar. Þangað beinum við þeim tugþúsundum ferðamanna sem koma til Eyja til
þess að sjá lundann í sínu náttúrulega umhverfi enda búið að byggja þar lundaskoðunarhús
sem almenningur hefur aðgang að. Í Stórhöfða er fylgst með varpi, við sjáum lundapysjurnar
vaxa og þar eru einnig gerðar mælingar og rannsóknir sem tengjast lundanum. Við erum að
markaðssetja Vestmannaeyjar sem áfángastað sem er með stærstu lundabyggð í heimi í þeim
tilgangi að laða að ferðamenn. Það er hreinlega úr takt að beina fólki þangað í þessum
tilgangi þegar á sama tíma eru veiðimenn að veiða fuglinn og snúa hann úr neðar í brekkunni.
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja

