Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær var rætt að um að flytja félagsmiðstöð unglinga og endurnýjun á skrifstofuaðstöðu fjölskyldu- og fræðslusviðs.
Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs lagði fram minnisblað þar sem lagður er til flutningur á félagsmiðstöð unglinga og lagðar til endurbætur á skrifstofuaðstöðu fjölskyldu- og fræðslusviðs.
Í niðurstöðu ráðsins segir að fjölskyldu- og tómstundaráð leggi til að tillögur framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs um flutning á félagsmiðstöð unglinga frá Rauðagerði að Strandvegi 50, auk þess sem að endurbætur verði gerðar á skrifstofuaðstöðu fjölskyldu- og fræðslusviðs á Rauðagerði verði samþykktar.
Aðstaðan að Strandvegi 50 er heppileg fyrir félagsmiðstöð, rýmið rúmgott og staðsetning góð. Einnig er gott aðgengi fyrir fatlaða. Breytingar á flutningi félagsmiðstöðvarinnar , sem og kostnaður við endurbætur á skrifstofuaðstöðu fjölskyldu- og fræðslusviðs á Rauðagerði rúmast innan fjárhagsáætlunar þessa árs.