Í nokkur ár hefur Eykyndill fært fermingarbörnum reykskynjara að gjöf
En vegna covid seinkaði því örlítið og í dag gátu þau loksins mætt og afhent þeim reykskynjaran. Slökkvitækjaþjónustan hefur gefið Eykyndli reykskynjarana og þakka þau innilega fyrir.
Friðrik Páll Arnfinnson slökkviliðstjóri var einnig með í för og fór yfir brunavarnir og hættur inn í t.d. herbergjum.
Með allri þeirri tækniþróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár er mjög mikilvægt að foreldrar fræði börnin sín vel, sér í lagi með frágang hleðslusnúra og síma þar sem oft eru þessi tæki upp í rúmi hjá börnunum okkar.
Takk Eykyndill. Slökkvitækjaþjónustan og Friðrik slökkviliðstjóri fyrir ykkar framlag.


