13.12.2020
Í ljósi aðstæðna hafa aðstandendur Eyjatónleikanna, sem fara áttu fram 23.janúar næstkomandi, ákveðið í samráði við Hörpu tónlistarhús, að færa tónleikana til laugardagskvöldsins 01.maí 2021.
Um leið verður smá breyting á söngvarahópnum, Helgi Björns og Silja eru því miður upptekin í öðrum verkefnum en í staðinn fáum við inn Brekkusöngsstjórnandann Ingó Veðurguð og Katrínu Halldóru Sigurðardóttur, sem sló í gegn í söngleiknum Ellý.
Bjóðum við þau hjartanlega velkomin í hópinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebooksíðuð Eyjatónleikanna.
Núverandi miðahafar verða að sjálfsögðu færðir á nýja dagsetningu, en geta einnig fengið miðana sína endurgreidda hjá tix.is eða harpa.is.
Hér fylgir með myndband Oddgreistónleikar 2011