Tilkynning frá Landakirkju:
Hljómsveitin Eyjasynir mun sjá um tónlistarflutning í guðsþjónustu sunnudagsins. Hljómsveitin er skipuð ungu fólki sem hefur sótt nám í Tónlistarskóla Vestmannaeyja og verður spennandi að fá þau til okkar í Landakirkju á sunnudag.
Guðsþjónustan hefst kl. 11 eins og hefðbundið er yfir sumartímann. Sr. Viðar þjónar fyrir altari og prédikar.
Sjáumst í kirkjunni okkar