Í dag var Eyjasundsbikarinn afhentur í fyrsta skiptið. Hann er afhentur þeim sem hafa synt Eyjasundið, sem milli Vestmannaeyja og Landeyjasands. Fimm einstaklingar hafa synt þetta sund. Það eru 60 ár síðan Eyjólfur Jónsson synti það fyrstur í júlí 1959. Á þessu ári synti Sigrún Þuríður Geirsdóttir, sem er frænka Eyjólfs, fyrst kvenna þetta sund.
Hún og Kristinn Magnússon sem var sá þriðji til að synda sundið voru í Eyjum í dag og tóku við viðurkenningum frá Vestmannaeyjabæ.
Þetta eru þeir fimm sem synt hafa Eyjasundið.
1. Eyjólfur Jónsson 13.07.1959
2. Axel Kvaran 21.07.1961
3. Kristinn Magnússon 30.08.2003
4. Jón Kristinn Þórsson 04.08.2016
5. Sigrún Þuríður Geirsdóttir 23.07.2019
Bikarinn og upplýsingaskilti um sundið verða til sýnis í íþróttahúsinu.