Föstudagur 13. nóvember 2026

Eyjarnar komnar í jólafrí

16.12.2020

Ísfisktogarar Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, komu báðir með fullfermi til Vestmannaeyja í gær. Aflinn var mestmegnis þorskur og ýsa sem fékkst fyrir austan land. Heimasíðan ræddi stuttlega við Egil Guðna Guðnason sem var skipstjóri á Vestmannaey í veiðiferðinni. „Við vorum að veiða á Gerpisflakinu í skítaveðri.
Aflinn fékkst á fjórum dögum en megnið af honum kom þó á einum og hálfum sólarhring. Það voru yfir 20 metrar allan tímann sem við vorum þarna og svo fengum við 30 metra norðaustan á leiðinni heim til Eyja. Bergey var á alveg sama róli og við,“ segir Egill Guðni.
Eyjarnar eru nú komnar í jólafrí og munu ekki halda á ný til veiða fyrr en 2. janúar. Í því sambandi er rétt að rifja upp að skipin héldu ekki til veiða eftir síðasta jólafrí fyrr en 13. janúar vegna veðurofsa.
Þetta var birt á vef Síldarvinnslunnar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search