Það er alltaf jafn gaman að rölta um á milli vinnustofa hjá Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja. Þau eru einnig bæjarlistamenn Vestmannaeyja í ár. Það er opið hjá þeim í dag til klukkan 18:00 og svo er opið hjá þeim nánasta alla daga. Við spurðum út í opnunartíma og svarið var einfalt: Þegar skiltið er úti þá er opið. Einnig er útilistasýning þeirra enn í gangi á Stakkó. Mikið erum við heppinn hér í Eyjum með allt þetta hæfileikaríka listafólk.
Tígull hvetur ykkur til að fara og skoða verkin þeirra, það er einfaldlega eitthvað við hæfi allra þarna.














