03.12.2020
Eyjapeyinn Sigurður Grétar Benónýsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við ÍBV.
Siggi lauk námi í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári og er fluttur heim.
Hann spilaði með Vestra á síðasta tímabili þar sem hann brá sér í ýmsar stöður í 22 leikjum og skoraði tvö mörk.
Það er mikil ánægja með að hafa fengið Sigga heim.
Velkominn Siggi og áfram ÍBV!

