Mánudagur 9. nóvember 2026

Eyjamenn bættu lagareldi inn í ályktun SASS

Vestmannaeyjabær lagði til viðbót við ályktun ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) um að frumvarp um lagareldi verði lagt fram á vorþingi 2027. Þetta kemur fram í svörum Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra við fyrirspurn Tíguls. Ársþingið var haldið á Hvolsvelli 29. og 30. október og krafðist þess að fyrirhuguðum skattahækkunum ríkisins yrði frestað þar til óháð mat á áhrifum þeirra liggur fyrir.

„Óvissa fyrir nýja atvinnugrein er aldrei góð og þá er fyrirsjáanleikinn enginn,“ segir Íris. „Við bindum miklar vonir við að þessu frumvarpi verði bætt á þingmálaskrá um áramót.“

„Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“

Ályktun ársþingsins ber yfirskriftina „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“. Þar er bent á að um helmingur nýrra skatttekna ríkisins eigi að koma úr Suðurkjördæmi, þó að þar búi aðeins rúmlega 9% landsmanna.

Meðal þess sem er gagnrýnt eru náttúrupassi, hærri virðisaukaskattur á baðlón, kílómetragjald, vegtollar og óvissa um lagaumgjörð lagareldis. SASS varar við því að álögurnar geti leitt til tekjutaps fyrir sveitarfélög og ríki og rýrt lífskjör á svæðinu.

Ársþingið krefst meðal annars að birt verði heildarmat á samanlögðum áhrifum allra fyrirhugaðra skattahækkana og gjalda, sundurliðað eftir landshlutum, og að sveitarfélögin fái raunverulega aðkomu að stefnumótun frá upphafi, áður en stórar ákvarðanir eru teknar.

Átta fulltrúar frá Eyjum

Átta fulltrúar sátu ársþingið fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar: Eyþór Harðarson, Trausti Hjaltason, Aníta Jóhannsdóttir, Óskar Jósúason, Arndís María Kjartansdóttir, Anton Björnsson, Jón Þór Guðjónsson og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.

Eyþór og Aníta sitja í stjórn SASS, Eyþór sem aðalmaður og Aníta sem varamaður, og komu að vinnu við drög að ályktuninni.

Ekkert eigið mat á áhrifunum

Bærinn hefur ekki látið meta sérstaklega hvaða áhrif nýjar álögur ríkisins hafa á atvinnulíf og heimili í Eyjum. „Nei, en dæmin sýna að auknar álögur draga úr þrótti atvinnulífsins,“ segir Íris.

Hún segir samráð ríkisins við sveitarfélögin ekki hafa verið eins og best verður á kosið þegar kemur að þeim nýju álögum sem lagðar hafa verið á undanfarið. Bæjarstjórn hafi enda gagnrýnt fjárlagafrumvarpið.

Ársþingið hvatti þingmenn Suðurkjördæmis til að beita sér, þvert á flokka, fyrir því að skattahækkunum yrði frestað. Íris vill að þeir „standi með hagsmunum Suðurlands, fylgi eftir ályktuninni og nái fram breytingum á þeim álögum sem þar eru nefndar og bitna hvað harðast á Suðurlandi“.

Myndir: Aðsendar.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search