Kvennalið ÍBV í handbolta mætir Gróttu í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi í dag, laugardag, og hefst leikurinn kl. 14:00. Leikurinn er í 7. umferð Olís-deildar kvenna.
ÍBV hefur farið vel af stað í vetur og situr í 3. sæti deildarinnar með 10 stig eftir sex leiki, fimm sigra og eitt tap. Síðast vann liðið Fram 30–29 í æsispennandi leik í Eyjum 17. október.
Grótta er í 7. sæti og með 4 stig. Hægt er að fylgjast með leiknum með Handboltapassanum: https://watch.livey.events/channels/handboltapassinn
Næsti heimaleikur Eyjakvenna er gegn Stjörnunni í Íþróttamiðstöðinni laugardaginn 7. nóvember kl. 14:00.

