Kvennalið ÍBV í handbolta sækir Stjörnuna heim í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Leikurinn fer fram í Heklu höllinni í Garðabæ miðvikudaginn 18. nóvember kl. 18:30. Hann verður einnig sýndur á RÚV.
Liðin drógust saman þegar dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna 24. september. Valur og Haukar sitja hjá í þessari umferð og koma inn í keppnina síðar.
Eyjakonur fá þó að kynnast Stjörnunni fyrr, því liðin mætast í Olís-deildinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 7. nóvember kl. 14:00. Liðin mætast því tvisvar á ellefu dögum.
ÍBV hefur unnið fimm leiki í röð í deildinni og situr í 2. sæti með 12 stig eftir sjö umferðir. Eina tap liðsins í deildinni til þessa var gegn Val í 2. umferð.
Stuðningsfólk ÍBV er hvatt til að taka báða leikina frá og styðja stelpurnar.

