Grunnskóli Vestmannaeyja og Evolytes gerðu nýverið með sér samning um notkun Evolytes námskerfisins fyrir stærðfræðikennslu á yngsta stigi.
Evolytes námskerfið sameinar námsleik, námsbók og upplýsingakerfi til þess að bæta námsárangur barna þar sem grunnfærni í stærðfræði er kennd á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Nemendur læra stærðfræði í ævintýraheimi sem hefur verið skapaður í kringum kerfið. Bókin samtengist svo námskerfinu í gegnum námsleikinn.
Öll svör sem börn svara í námskerfinu eru greind og metin til að aðlaga erfiðleikastig dæmanna að þeirra þörfum. Þannig nær kerfið að hámarka árangur allra í námsefninu. Kennarara fylgjast með námsframvindu í rauntíma og geta þar með fylgst með stöðu hvers og eins.
„Við erum virkilega spennt að geta boðið nemendum okkar upp á þessa nýjung í námi og hafa þau tekið henni fagnandi hér í GRV,“ segir í tilkynningu hjá GRV.

