
Þorrablót ÍBV
Þorrablót ÍBV fer fram laugardaginn 28. febrúar næstkomandi í Höllinni. Þetta fyrsta þorrablót á vegum félagsins.
Dagskrá kvöldsins:
Veislustjóri kvöldsins er Stefán Einar og á svið stíga einnig Hipsumhaps og Stuðlabandið.
Auk tónlistar verður uppboð, happadrætti og lukkuhjól. Þá verður ÍBV-skaupið sýnt síðar um kvöldið.
Skipuleggjendur vekja athygli á því að einungis fá borð séu eftir og hvetja fólk eindregið til að hafa samband sem fyrst og tryggja sér borð.
