Föstudagur 11. september 2026

Pálmi Gunnarsson

Laugardagskvöldið 29. apríl ætlar Pálmi Gunnars, ásamt nokkrum af bestu hljóðfæraleikurum landsins halda tónleika í Höllinni og flytja öll sín bestu og þekktustu lög.

Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.

Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Og allir muna eftir Gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni.

Ásamt því að starfa með Mannakornum, Brunaliðinu, Friðryk, Blúskompaníinu og Póker, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, hefur Pálmi átt glæsilegan sólóferil og unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir.

Pálmi gerir ekki mikið af því að koma einn fram en stígur nú á stokk og fer yfir glæsilega ferilinn sinn. Óhætt er að segja að hér sé um einstakt tækifæri til að hlýða á Pálma flytja öll sín þekktustu lög í mikilli nánd.

Með Pálma á sviðinu verða engar smá kanónur:
Gulli Briem – Trommur
Þórir Úlfars – Hljómborð
Pétur Valgarð – Gítar

Forsala miða hefst kl. 12.00 þann 24. febrúar á www.tix.is/hollin.

Húsið mun opna kl. 20.00 og tónleikar hefjast kl. 21.00.

Tryggið ykkur miða áður en það verður of seint.

Athugið að tónleikarnir eru sjálfstæður hluti af tónlistarhátíðinni Hljómey. Sjá nánar á hljomey.is.

Date

29. apr 2023
Expired!

Time

20:00

Local Time

  • Timezone: America/New_York
  • Date: 29. apr 2023
  • Time: 16:00

Location

Höllin
Category

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search