
Pabbinn finnur afann
PABBINN FINNUR AFANN er íslenskt verk sem er í senn mjög fyndið og hjartnæmt. Verkið segir frá tveimur mönnum (pabba og afa) á leið í golf til Tenerife, en vegna seinkunar þurfa þeir að hanga í marga klukkutíma á Keflavíkurflugvelli. Gríðarleg flughræðsla afans og erfiðleikar í hjónabandi pabbans, ásamt áskorunum í barnauppeldi, endalausum tækninýjungum og óumflýjanlegum eftirlaunaaldri eru aðeins nokkur af þeim krefjandi málum sem þeir félagar þurfa að kljást við á vellinum.
Nú ætla þeir Bjarni Haukur og Siggi Sigurjóns að mæta til Vestmannaeyja og sýna þennan gamanleik í Höllinni 28. október. Aðeins verður þessa eina sýning. Þeir sameina krafta sína eftir að hafa slegið í gegn með einleiki á borð við Hellisbúann, Pabbann, Afann og Maður sem heitir Ove.
Miðaverð er 5.900 kr í forsölu en 6.900 kr við hurð.
Miðasala hér: https://tix.is/is/event/15987/pabbinn-finnur-afann-i-eyjum/
Miðasala hér: https://tix.is/is/event/15987/pabbinn-finnur-afann-i-eyjum/
Húsið opnar kl. 19:30 og sýningin hefst kl. 20:30.
Tryggðu þér miða, því það er svo gaman að hlakka til!
