
Nýdönsk alelda í Eyjum!
Við kynnum með stolti stórtónleika með Nýdönsk í Höllinni Vestmannaeyjum.
Hvað er betra en að byrja sjómannadagshelgina á tónleikum með einhverri alvinsælustu hljómsveit Íslandssögunnar?
Þeir Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Jón Ólafs, Stefán Hjörleifs og Óli Hólm hafa sannarlega engu gleymt og flytja sitt besta efni frá ferlinum og er aldrei að vita nema ein og ein saga læðist með.
Húsið opnar 20.00 og tónleikar hefjast 21.00.
Verði ekki uppselt er miðaverð 8.900 kr við hurð.
Ath. aðeins þessir einu tónleikar.
Miðasala hér: https://tix.is/is/event/16765/nydonsk-alelda-i-eyjum/
