Föstudagur 11. september 2026

Jónas Sig ásamt hljómsveit í Eyjum

Jónas Sig snýr aftur til Vestmannaeyja með hljómsveitina sína og verður með tónleika í Höllinni 11. apríl. Jónas þarf vart að kynna fyrir Vestmannaeyingum enda hefur hann og hljómsveitir hans spilað fyrir fullu húsi hverja tónleikana á fætur öðrum í árana rás og margar göldróttar minningar skapast sem seint munu gleymast þeim sem það upplifðu.
Ferill Jónasar spannar allt aftur í gamla sveitaballið þegar Jónas var einn af forsprökkum Sólstrandargæjanna og söng lög eins og Rangur maður og Sólstrandargæi. Það var stuttur tími en nokkrum árum seinna eftir hlé frá bransanum sneri Jónas aftur með eigið efni sem kom mörgum á óvart. Þar með djúpum, ógleymanlegum perlum eins og Hafið er svart, Milda hjartað og Faðir og auðvitað partý-stuð-ádeilum eins og Hamingjan er hér, Hleypið mér út úr þessu partýi, Baráttusöngur uppreisnarklansins og svo mætti lengi telja.
Það er mikil tilhlökkun fyrir þessum tónleikum hjá Jónasi og félögum og spenningur að koma til Eyja. Ógleymanlegu kvöldi lofað.
Jónas Sig kemur með hljómsveitina sína sem er skipuð Ómari Guðjónssyni á gítar, Tómasi Jónssyni á orgvélar og syntha, Arnari Gísla á trommur og Guðna Finns á bassa.
Húsið opnar kl. 20 og tónleikar hefjast kl. 21.00. Miðaverð við hurð er 7.990 kr

Date

11. apr 2026
Expired!

Local Time

  • Timezone: America/New_York
  • Date: 11. apr 2026
Category

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search