
Jólahlaðborð Hallarinnar og Einsa kalda 2023
Einsi er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir veislur sínar og fer á kostum í jólahlaðborðum sínum.
Í kjölfar matarveislu hefjast svo metnaðarfullir jólatónleikar undir stjórn Gísla Stefáns. Í ár syngja þau Una, Sara, Tóti, Einar Ágúst og Sæþór Vídó. Sérstakur gestur kvöldsins er engin önnur en Ragga Gísla!
Jólahlaðborðin verða föstudaginn 8. desember og laugardaginn 9. desember.
Verð er 13.900 kr.
Einar Ágúst trúbbar á Háaloftinu bæði kvöldin en Háaloftið opnar 23.00. Háaloftið verður opið öllum og frítt inn.
Miðapantanir í síma 8685460 eða á hollinivestmannaeyjum@gmail.com.