Tónleikar í stofum heimamanna í Vestmannaeyjum. Hljómey heppnaðist virkilega vel í fyrra og er þetta í annað sinn sem Hljómey er haldin. Planið er að þetta verði árlegur viðburður. Frábær hópur listamanna mætir í ár eins og sjá má hér fyrir neðan. Uppselt er á hátíðina í ár.