
Handverks- og vörumarkaður
Helgina 18. og 19. nóvember verður glæsilegur handverks- og vörumarkaður í Höllinni frá 13.00 – 17.00 báða dagana.
Skráning hefur verið með glæsta móti og hafa yfir 20 söluaðilar boðað komu sína.
Við verðum einnig með jólakaffihús á efri palli Hallarinnar þar sem fólk getur gætt sér á heitu súkkulaði og nýbökuðum vöfflum, svo dæmi séu tekin.
Enn er hægt að skrá sig og kostar borðið aðeins 5.000 kr yfir helgina og tvö borð 9.000 kr. Skráning fer fram á hollinivestmannaeyjum@gmail.com.
Húsið opnar kl. 11.00 þann 18. nóvember fyrir söluaðila og markaðurinn byrjar svo sem fyrr segir kl. 13.00.
