
Abbababb
Íslenska dans- og söngvamyndin Abbababb, eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur. Myndin verður sýnd í Eyjabíó laugardag og sunnudag kl. 15:00
Myndin er byggð á samnefndum söngleik eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson eða Dr. Gunna. Hún fjallar um Hönnu og vini hennar í hljómsveitinni Rauðu hauskúpunni sem uppgötva að óprúttnir náungar ætla að sprengja upp skólann þeirra á lokaballinu. Þurfa þau því að beita öllum sínum ráðum til að ná sökudólgnum.
Ísabella Jónatansdóttir, Óttar Kjerulf Þorvarðarson og Vilhjálmur Árni Sigurðsson fara með aðalhlutverk í myndinni.
Hér má sjá stiklu úr Abbababb: