
Októberfest Hallarinnar og Einsa Kalda
Það verður sannkölluð München stemning í Höllinni þann 3. október.
Beerpong, Matti Matt, Una&Sara, stígvélaþamb og margt fleira.
Í alvöru partý þarf sjálfan partýstjórann og verður Ásgeir Páll í húsi með sína stemningu og skífuþeyting.
Bjórtjald á staðnum og matartjald að hætti Einsa kalda. Boðið verður upp á krydd-pylsur, bratwurst-pylsur, vínarschnitsel, München-dressingu, b.b.q. rif, hrásalat, kartöflusalat og að sjálfsögðu súrkál.
Þá verður einnig geggjað pretzel með ostadýfu.
Miðaverð aðeins 6.900 kr og fá allir sem mæta í búning frían bjór.
Miðasala hefst föstudaginn 17. ágúst.
