Erlingur Richardsson þjálfari meistaraflokks karla skrifaði nýverið undir nýjan samning við hollenska handknattleikssambandið, en nýr samningur er þess efnis að hann mun stýra hollenska landsliðinu til ársins 2022.
Erlingur hefur starfað sem landsliðsþjálfari Hollands frá október 2017 og er að vonum ánægður með áframhaldandi vegferð með liðinu. Undir stjórn Erlings hefur hollenska liðið tekið miklum framförum en þeir kepptu meðal annars á Evrópumótinu í janúar 2020.
Við óskum Erlingi til hamingju með þetta en hann heldur áfram að starfa sem þjálfari karlaliðs ÍBV samhliða starfinu fyrir Holland.
Smelltu hér til að fara inn á frétt sem birtist í hollenskum fjölmiðlum um þetta
Tekið af vef ÍBV.