Þá er langþráðri loðnuvertíð lokið og þykir hún hafa tekist nokkuð vel í ljósi aðstæðna. Vont veður setti mark sitt mikið á veiðarnar sér í lagi þegar loðnan var hrognafull en hrognin eru verðmætasti hluti vertíðarinnar. „Við ráðum engu um veðrið. Við fengum þarna tvo eða þrjá daga þar sem við fengum hrognafulla loðnu sem bjargaði þessu, þannig að við gátum framleitt eitthvað af loðnuhrognum,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í samtali við mbl.is á dögunum. Hann segir hinsvegar ljóst að þessi ellefu til tólf þúsund tonn af loðnuhrognum sé langt frá því að vera nóg fyrir markaðinn. Til viðbótar við að veðurofsann hafi menn einnig sjaldan séð eins mikið magn af hval á miðunum. „Ég myndi nú segja heilt yfir að hún hafi tekist vel til í ljósi aðstæðna,“ sagði Binni.



