Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur hafið þátttöku í Erasmus verkefni sem felur í sér samstarf við kennara og nemendur frá Sevilla á Spáni og Pisa á Ítalíu. Verkefnið mun standa yfir til vors 2026 og er áætlað að heimsækja hvern stað tvisvar sinnum. Yfirumsjón með verkefninu fyrir hönd FÍV hafa þær Tinna Hauksdóttir og Auðbjörg Halla Jóhannsdóttir.
Þema verkefnisins er „Vatn í tengslum við loftlagsbreytingar“, sem skiptir máli í ljósi þeirra áskorana sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér, allt frá vatnsskorti yfir í bráðnun jökla og langtíma áhrif þess. Helstu markmið verkefnisins eru að nemendur auki vitund sína á mikilvægi ábyrgðarfullri vatnsnotkun, dýpki þekkingu sína um áskoranir tengdar vatnsnotkun og loftslagsbreytingum og hvetja til skapandi sjálfbærra lausna í umgengni við náttúruna.
Gestkvæmt í skólanum
Dagana 22.-27. september tókum við á móti átta nemendum, fjórum frá Spáni og fjórum frá Ítalíu, ásamt sex kennurum, þremur frá hvoru landi. Dagskráin var þétt og fjölbreytt, með áherslu á að kynna nemendur fyrir náttúru, menningu og sjálfbærri orku á Íslandi, þar sem Vestmannaeyjar voru að sjálfsögðu í brennideplinum.
Haldnar voru vinnustofur þar sem nemendur öfluðu sér þekkingar, deildu hugmyndum sínum um vatnsvernd og hvernig bæta megi sjálfbærni í vatnsnotkun. Í lok hverrar vinnustofu var farið í heimsóknir til ýmissa fagaðila á eyjunni til að sjá hvernig Vestmannaeyingar haft um áraraðir nýtt náttúruauðlindir á sjálfbæran hátt.
Heimsóknir voru skipulagðar í samstarfi við ýmsa sérfræðinga Vestmannaeyja í vatnsnotkun og grænni orku. Fyrsta heimsóknin var í Varmadælustöðina, þar sem Ívar Atlason og Guðmund Gíslason hjá HS veitum tóku vel á móti hópnum. Þeir útskýrðu hvernig þessi kerfi nýta sjávarhitun til að hámarka orkunýtni við húshitun í bænum og eftir að hafa setið fyrir spurningum nemenda, fóru þeir með hópinn að skoða tækin.
Næst var farið með hópinn upp á hraun, þar sem Pál Zóphóníasson deildi með okkur sögu Vestmannaeyinga í nýtingu jarðvarma eftir gos. Hópnum þótti mjög merkilegt að heyra það að eyjamenn voru fyrstir í heiminum til að nýta hita frá hrauni til að bæta orkunýtingu eftir gos. Eftir það var skoðað Eldheima safnið og gengið uppá Eldfell í kjölfarið.
Einn af hápunktunum að mati gestakennaranna var að hafa verið boðin niður í sjálft Ráðhús Vestmannaeyjarbæjar. Þar tók Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdsvið Vestmannaeyjabæjar, ásamt Bjarna Geir Péturssyni, rafmagns- og tölvuverkfræðingur Geisla, á móti okkur . Brynjar greindi frá þeim áskorunum sem standa frammi fyrir Vestmannaeyingum þegar kemur að vatnsleiðslunni og mikilvægi þess tryggja jafnvægi milli vatnsnotkunar og sjálfbærrar orkunotkunar í samfélagi sem byggir að miklu leyti á orkunýtingu úr náttúrunni. Á meðan Bjarni Geir fór yfir uppsetningu og tæknina sem liggur að baki neyðartanka almannavarna, þ.e. hvernig hægt er að breyta sjó í drykkjarvatn. Þessir tankar eru nauðsynlegir til að tryggja ferskvatnsöryggi í neyðartilvikum. Eftir það lá leiðin niður á bryggju þar sem hópurinn fékk að skoða vatnsgámana og spurja Bjarna spjörunum úr.
Seinast heimsóttum við eitt af nýrri fyrirtækjum bæjarins sem leggur mikla áherslu á umhverfisvænan rekstur og sjálfbærni, Laxey. Þar tók Óskar Jósúason vel á móti okkur og fræddi okkur m.a. hvernig fyrirtækið nýtir háþróuð vatnsnýtingarkerfi í laxeldinu, og kemur til með að búa til sitt eigið vatn úr sjó sem og að nýta sjávarhitann úti á hrauni. Eins og einn nemandanna orðaði það „gerist ekki grænna en þetta fyrirtæki“.
Samstaða og jákvæðni
Það er ekki sjálfsagt að fara í heimsóknir sem þessar, en allir fagaðilarnir tóku mjög vel í hugmyndina og buðu okkur velkomin, tilbúnir með alls kyns fróðleik og svöruðu öllum þeim spurningum sem bornar voru uppá borð. Þakklæti er það sem kemur helst upp í hugann. Þessi lærdómsríka heimsókn sýndi gestunum ekki einungis hvað Vestmannaeyjar standa frammi fyrir sértækum áskorunum eða hversu mikil áhersla er lögð á sjálfbærni og nýsköpun á litlu eyjunni okkar, heldur hvað samstaða, jákvæðni og greiðvirkni er einkennandi fyrir samfélagið okkar.
Nemendur lögðu mikla vinnu í verkefnið, og við getum verið stolt af fulltrúum nemenda okkar úr FÍV, en það var ekki einungis vinna heldur voru skapaðar minningar saman. Farið var með hópinn í Sea life til að skoða hvalina, sameiginleg spilakvöld, íslenskt pálínuboð með dansi, það var skellt sér í sund og svo var mætt með hópinn á handboltaleik með meistaraflokki ÍBV karla. Veðrið var með eindæmum gott en þeim fannst kuldinn ótrúlegur. Sólsetrin hvert öðru fallegra og til að toppa það þá skreyttu norðurljósin himininn á kvöldin. Það er því óhætt að segja að fyrsti hluti verkefnisins hafi lukkast einstaklega vel, og framhaldið er spennandi.







