Fjölmiðlar í Jamaíka segja að Heimir Hallgrímsson sé að taka við landsliði þjóðarinnar og verði formlega kynntur síðar í vikunni. Þetta kemur fram í einu stærsta dagblaði landsins, The Gleaner.
Eins og við greindum frá í gær þá kom það fram í Stúkunni á Stöð 2 Sport að Heimir væri staddur erlendis í viðræðum en ekki var nánar tilgreint um hvaða starf væri að ræða.
Hann hefur verið án þjálfarastarfs síðan hann yfirgaf Al Arabi í Katar en hefur í sumar verið ÍBV innan handar.
Jamaíka er í 62. sæti á styrkleikalista FIFA, einu sæti ofar en íslenska landsliðið.

