Enska úrvalsdeildin hefst aftur um helgina. Það eru sex leikir um helgina og tveir á mánudag. Leikjum hjá Manchester-liðunum var frestað þar sem þau lið fóru lengst enskra félaga í Evrópukeppnum. Fyrsti leikur deildarinnar er í hádeginu á morgun þegar Fulham tekur á móti Arsenal í Lundúnaslag og
spila Englandsmeistarar Liverpool gegn nýliðum Leeds klukkan 16:30.
Hér að neðan má sjá alla leiki helgarinnar:
laugardagur 12. september
11:30 Fulham – Arsenal (Síminn Sport)
14:00 Crystal Palace – Southampton (Síminn Sport)
16:30 Liverpool – Leeds (Síminn Sport)
19:00 West Ham – Newcastle (Síminn Sport)
sunnudagur 13. september
13:00 West Brom – Leicester (Síminn Sport)
15:30 Tottenham – Everton (Síminn Sport)
mánudagur 14. september
17:00 Sheffield Utd – Wolves (Síminn Sport)
19:15 Brighton – Chelsea (Síminn Sport)