síldarvinnsla vsv

Enginn kórónusmitaður í Vinnslustöðinni

Engin kórónusmit greindust meðal starfsfólks Vinnslustöðvarinnar í PCR-prófunum helgarinnar. Starfsmaður veiktist og ýmislegt benti til kórónuveirunnar. Sá grunur styrktist við jákvæða niðurstöðu í hraðprófi. PCR-próf hjá viðkomandi var hins vegar neikvætt og sama átti við um PCR-próf hjá á annað hundrað öðrum starfsmönnum í fiskvinnslu og á skrifstofu fyrirtækisins. Niðurstaðan var með öðrum orðum blessunarlega sú að enginn smit greindust í hópnum.

Vinna á vöktum hófst því með eðlilegum hætti en viðbragðsteymi Vinnslustöðvarinnar er reynslunni ríkara. Viðbrögð öll vegna gruns um kórónusmit voru eðli máls samkvæmt, ákveðin og fumlaus í alla staði. Rík áhersla er lögð á persónulegar sóttvarnir hér eftir sem hingað til.

Vinnslustöðin þakkar starfsmönnum heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum fyrir sinn þátt í málinu, skjót viðbrögð og aðstoð segir að lokum í tilkynningu frá Vinnslustöðinni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is