Engin áramótabrenna og mjög breytt snið á þrettándagleðinni

18.12.2020

Á fundi bæjarráðs í gær ræddi Bæjarstjóri litaviðvörunarkerfi sem almannavarnir kynntu á dögunum.

Samkvæmt kerfinu er allt landið merkt rautt, þ.e. neyðarstig. Bæjarstjóri hefur verið í samskiptum við almannavarnir um stöðuna í Vestmannaeyjum og hvort litaviðvörunarkerfið taki mið af því að ekki hafa komið upp smit í Vestmannaeyjum í langan tíma.

Almannavarnir hafa svarað því að þann hátt að fleiri þættir en staðbundið ástand eru metnir í litaviðvörunarkerfinu.

Engin áramótabrenna í ár 

Ákveðið hefur verið að hætta við áramótabrennu á vegum Vestmannaeyjabæjar að þessu sinni vegna samkomutakmarkana stjórnvalda. Með því er dregið úr hættunni á því að fólk safnist saman af þessu tilefni. Verið er að skoða með lögreglustjóra Vestmannaeyja hvort flugeldasýningin verði leyfð. Tilkynnt verður um það á næstu dögum.

Fyrirkomulag þrettándagleðinar verður kynnt þegar nær dregur

Þrettándagleðin verður með mjög breyttu sniði í upphafi næsta árs í ljósi samkomutakmarkana en fyrirkomulagið verður kynnt þegar nær dregur.

 

Bæjarráð þakkar bæjarbúum 

Bæjarráð vill koma á framfæri þakklæti til íbúa í Vestmannaeyjum fyrir að taka þátt í og sýna aðgerðum um fjöldatakmarkanir og öðrum sóttvarnaraðgerðum sem í gildi eru skilning.

Með tilkomu bóluefnis eru vonir bundnar við að bjart sé framundan og ekkert til fyrirstöðu að hefja uppbyggingu og vöxt að nýju þegar þessu ástandi lýkur.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is