Mikill fjöldi fólks var saman kominn á þjóðhátíð í Herjólfsdal í gærkvöldi og nótt og talsverður erill hjá lögreglu fram undir morgun.
Laugardagsnóttin er á pari við laugardagsnóttina 2019 að sögn Jóhannes Ólafssonar yfirlögregluþjóns í samtali við Tígul. Hann sagði einnig að hann hafði aldrei upplifað á sínum ferli jafn rólega nótt og föstudagsnóttin var á þjóðhátíð.
Sjö líkamsárásarmál eru skráð hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir nóttina. Í öllum tilfellum var um minniháttar líkamsáverka að ræða, að því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.
Alls voru sjö vistaðir í fangageymslu, fjórir vegna ölvunarástands og þrír í tengslum við rannsókn líkamsárásarmála.
Þá voru sjö minniháttar fíkniefnamál skráð síðasta sólarhringinn.
Gætið þess að aka ekki af stað fyrr en tryggt er að allt áfengi er farið úr blóðinu
„Nú í morgunsárið er rólegt yfir bænum og sólin að gægjast í gegnum skýin. Lögregla vill beina því til ökumanna að gæta vel að því að aka ekki af stað fyrr en tryggt er að allt áfengi sé farið úr blóðinu.“
Lögreglan í Vestmannaeyjum verður með öflugt eftirlit með ástandi ökumanna á götum bæjarins í dag.

