Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2019/2020. Ráðgjöfin verður endurmetin byggt á mælingum á stærð veiðistofnsins í byrjun árs 2020.
Hér er um að ræða haustráðgjöf sem er endurmetin ráðgjöf fyrir núverandi fiskveiðiár og kemur í stað upphafsráðgjafar. Ráðgjöf um upphafsafla þessa fiskveiðiárs byggði á bergmálsmælingu ókynþroska loðnu (1 og 2 ára) haustið 2018, samkvæmt aflareglu sem samþykkt var á rýnifundi ICES árið 2015 (ICES, 2015). Aflareglan gerir ráð fyrir að ráðgjöfin verði endurskoðuð að loknum mælingum á stærð veiðistofnsins að hausti og gefin út lokaráðgjöf að loknum leiðöngrum í janúar og febrúar.
Niðurstöður leiðangursins byggja á umfangsmikilli yfirferð. Almennt fannst lítið af kynþroska loðnu á leitarsvæðinu og engin loðna fannst austanvert í Íslandshafi eða við Jan Mayen. Talið er að tekist hafi að dekka þekkt útbreiðslusvæði stofnsins.
nánar um þetta mál inn á hafogvatn.is