Laugardagur 17. október 2026

Emil og félagar í U17 fyrstir áfram

Emil Gautason og félagar í íslenska landsliðinu 17 ára og yngri voru í dag fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027 í þessum aldursflokki.
Strákarnir áttu mjög vel heppnaða daga í Bosníu og Hersegóvínu þar sem liðið lék gegn heimamönnum en einnig gegn Gíbraltar og Grikkjum. Leikið var í Zenica og Kakanj.
Fyrsti leikur riðilsins var gegn Gíbraltar en þar spilaði Emil 45 mínútur í góðum 4:0 sigri sem gaf tóninn fyrir framhaldið í riðlinum. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leiki riðilsins þar sem heimamenn voru lagðir 3:1 á laugardaginn en í dag tryggði Ísland sér toppsætið í riðlinum með sigri á Grikkjum 3:2.
Ekki er ljóst hverjum strákarnir mæta í næstu umferð en það verður í fjögurra liða riðli þar sem eitt lið fer áfram á lokamótið í Lettlandi. Ísland og Bosnía voru fyrstu liðin til að tryggja sig áfram í næstu umferð.
Emil hefur leikið frábærlega með ÍBV á tímabilinu en hann hefur skorað virkilega mikið bæði í 2. og 3. flokki ásamt því að hafa leikið frábærlega með landsliðinu sínu á þróunarmóti UEFA í sumar.
 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search