Elliði Snær Viðarsson átti stórleik í gærkvöldi þegar lið hans Gummersbach hélt sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni. Hann skoraði 11 mörk í 14 skotum og átti tvær stoðsendingar auk þess að stela boltanum einu sinni í fimm marka sigri á heimavelli, 29:24, á Stuttgart.
Hákon Daði Styrmisson liðsfélagi Elliða skoraði eitt mark en það var hans fyrsta fyrir liðið í 1. deild. Hákon Daði er að sækja jafnt og þétt í sig veðrið eftir krossbandaslit undir lok síðasta árs.
Gummersbach hefur þar með átta stig eftir fimm leiki og er í hópi efstu liða. Frábær byrjun hjá nýliðunum undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar þjálfara.

