Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson verður í eldlínunni með íslenska karlalandsliðinu í handbolta sem mætir Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30. Leikurinn er sá fyrsti hjá Íslandi í undankeppni EM 2028 og er uppselt á hann.
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi 20 leikmenn fyrir leikina tvo í þessari landsleikjaviku. Ýmir Örn Gíslason er meiddur og Teitur Örn Einarsson var kallaður inn í hópinn í stað Einars Þorsteins Ólafssonar, sem er einnig meiddur.
Ísland mætir svo Eistlandi í Tallinn á sunnudag, 8. nóvember, klukkan 16 að íslenskum tíma. Elliði Snær verður ekki með í þeim leik. Serbía er fjórða liðið í riðli Íslands.
Leikurinn í kvöld verður sýndur beint á RÚV 2 og hefst útsendingin klukkan 19:20.
Tígull óskar Elliða og strákunum góðs gengis!

