Mánudagur 16. nóvember 2026

Elísabet lék með U-15 liði Íslands gegn Póllandi í gær

Elísabet Rut Sigurjónsdóttir lék aftur með U15 ára liði Íslands í gær er liðið mætti gestgjöfum Póllands, en hún spilaði fyrstu 63 mínútur leiksins. Ísland leiddi 1:0 í hálfleik en í upphafi síðari hálfleik hrundi leikur liðsins og Pólverjar skoruðu fjögur mörk á stuttum tíma.

Ísland minnkaði muninn í 4:2 rétt áður en Elísabet fór af velli. Lokatölur voru 6:3 og Ísland því með 3 stig fyrir lokaleikinn gegn Litháen.

Elísabet lék í vinstri bakverði í leiknum en hún er oftar en ekki sóknarmaður hjá yngri flokkum félagsins. Hún átti nokkra góða spretti og takta jafnt varnarlega sem sóknarlega.

Síðasti leikurinn verður á sunnudaginn áður en liðið heldur aftur til Íslands.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search