Elísa verður ekki með næstu vikur

Ein efnilegasta handknattleikskona landsins, Elísa Elíasdóttir, leikur ekki handknattleik aftur fyrr en á nýju ári vegna meiðsla sem hún varð fyrir á öxl. Þetta staðfesti Vimar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV, við handbolta.is í gær.

Elísa fékk þungt högg á aðra öxlina í viðureign Vals og ÍBV í Origohöllinni 10. nóvember og hefur ekkert verið með liðinu síðan.„Það er hvorki brot né slit í öxlinni en mælt er með því að Elísa taki sér frí fram að áramótum,” sagði Vilmar Þór við handbolta.is.

Elísa, sem er 18 ára, er orðin ein af burðarásum ÍBV-liðsins, jafnt í vörn sem sókn, auk þess sem hún lék sína fyrstu A-landsleiki í byrjun október.

Hennar verður sárt saknað í U18 ára landsliðinu sem fer til Serbíu á morgun þar sem liðið tekur þátt í undankeppni um sæti í A-deild Evrópumótsins sem fram fer næsta sumar. Elísa var kjölfesta U17 ára landsliðsins sem hafnaði í öðru sæti í B-deildarkeppni EM í sumar í Litáen.

Elísa bætist þar með á sjúkralista ÍBV-liðsins sem hefur verið án Birnu Berg Haraldsdóttur og Hrafnhildar Hönnu Þrastardóttir það sem af er leiktíðar.

ÍBV mætir AEP Panorama í Evrópubikarkeppninni í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 18.30 og á morgun klukkan 13.

Forsíðumynd frá HSÍ/ Greint er frá inn á handbolti.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is