Laugardagur 17. október 2026

Elís Þór framlengir til 2028

Elís Þór Aðalsteinsson hefur gert nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út næsta keppnistímabilið 2027-28.

Elís hefur leikið lykilhlutverk í liði ÍBV undanfarin ár og átti frábært tímabili í fyrra. Hann hefur leikið upp öll yngri landslið Íslands og nú síðast á HM í sumar með U21 árs liðinu.

Elís Þór vinnur nú hörðum höndum í endurhæfingu eftir aðgerð sem hann gekkst undir í sumar eftir að hafa meiðst í leik með landsliðinu. Hann stefnir á að koma tvíefldur til leiks á næsta tímabili.

Við erum afar ánægð með þetta og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Við stöndum þétt við bakið á Elís í bataferlinu og hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum segir í tilkynningu frá ÍBV.

Garðar B. formaður handknattleiksdeildar og Elís Þór undirrituðu samninginn í hálfleik í gær, á leik ÍBV og HK eins og má sjá á meðfylgjandi mynd.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search