15.01.2020
Frístundastyrkurinn er kominn upp í 35.000.- og ekki þarf lengur að leggja út fyrir gjöldunum fyrst og sækja svo um styrkinn heldur er hægt í dag að fá strax styrkinn inn á gjaldið og því mun gjaldið lækka um 35.000 kr
Dæmi: Ársgjaldið fyrir að æfa fótbolta og handbolta hjá ÍBV er 70.500 kr hægt er þá að nota 35.000kr styrkinn upp í það gjald og greiða þá eingöngu 35.500.- í ársgjald.
Þetta mun heldur betur koma sér vel fyrir fjöldan allan af fjölskyldufólki sem sum hver eru að greiða 2-4 félagsgjöld.
Nánari upplýsingar um þetta er að finna hér að neðan:
Niðurgreiðsla þátttökugjalda barna 2 – 18 ára í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi í Vestmannaeyjum / Frístundastyrkur.
Styrkurinn er að upphæð kr. 35.000 og gildir frá 1. janúar 2020 – 31.desember 2020. Úthlutunarreglur Frístundastyrks Vestmannaeyjabæjar.
Eftirfarandi aðilar eru skráðir samstarfsaðilar við Vestmannaeyjabæ vegna frístundastyrks:
- ÍBV – Íþróttafélag
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
- Fimleikafélagið Rán
- Tónlistarskóli Vestmannaeyja
- Skátafélagið Faxi
- Sundfélag Vestmannaeyja
- Karatefélag Vestmannaeyja
- Hugarfrelsi ehf.
- Hressó – skipulögð unglinganámskeið
- Peers eyjar
- Sumarfjör
Frá árinu 2020 mun Vestmannaeyjabær í samstarfi við samstarfsaðila notast við rafrænt greiðslu- og skráningarkerfi (NORA frá Greiðslumiðlun) sem heldur utan um alla umsýslu frístundastyrksins.
Fyrirkomulagið er með því sniði að foreldrar/forráðamenn fara inn á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða þess samstarfsaðila sem tilgreindur er hér að ofan þar sem skrá á barn/börn til þátttöku.
Á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða félaganna er/verður hlekkur inná skráningarsíðu þar sem foreldrar/forráðamenn skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar/forráðamenn valið að nota frístundastyrkinn frá Vestmannaeyjabæ.
Með tilkomu rafræns fyrirkomulags er hægt að skipta frístundastyrknum niður á milli félaga/deilda/námskeiða.
Bein slóð inn á umsóknir